Dagurinn byrjaði þvílíkt "snemma" eitthvað hjá mér eða um 9
leytið...ÁSLAUG Ýr kom svo um hálf 11 leytið og var ekkert smá
gaman að sjá hana.Kom með föt og mandarínu í poka,ég fékk svona
tilfinningu eins og ég væri orðin "helgarmamma".
Við vorum svo heillengi að skoða myndir af síðunni hennar og rifja
upp eitthvað gamalt og gott,hún hefur svo gaman að því að heyra
hvað hún og aðrir gerðu þegar hún var lítil.Fórum svo til Ömmu Mæju
og þar voru Vöfflur á boðstólnum....ekki slæmt það.Náði svo að
draga Mömmu á einn laugarvegsrúnt,svona í tilefni á fyrsta deginum
mínum út úr húsi

Svo var farið heim eldað góðan mat og endað á
kósýkvöldi hjá mér og ýr.
Ég komst ekki inn í VMA,en ég ákvað þá bara að halda áfram og sótti
um í 2 aðra skóla í fjarnámi,Skrítið og reyndar ekki skrítið hvað
ég er virkilega farin að sækjast í nám

Bara gott mál
reyndar.
Er rosa ánægð með þennan dag og hún er svo mikið Krútt hún
Ýr.Fyndið hvað hún hefur svör fyrir öllu sama þótt umræðuefnið er
hjartasjúkdómur,þá gaf hún frá sér hljóð,sem að var hennar
útskýring á biluðu hjarta
Vil benda á eina síðu sem ég skoða á hverjum degi,sérstaklega ef
það er eitthvað sem pirrar mig þá les ég þetta og skammast ég mín
fyrir að vera pirra mig yfir nákvæmlega engu......miðað við hvað
það eru margir sem þurfa að ganga í gegnum alveg eitthvað sem maður
óskar nákvæmlega ENGUM...
Segi þetta bara gott í bili
Góða nótt